Hoppa yfir valmynd
1.7.2013
Metumferð um flugstjórnarsvæðið í júní

Metumferð um flugstjórnarsvæðið í júní

Síðasta mánuð var metumferð um íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið en aldrei hafa fleiri flugvélar farið um svæðið í júnímánuði. Um svæðið fóru 12.148 flugvélar en í sama mánuði í fyrra voru þær 10.599. Aukningin í júnímánuði á milli ára er því 14,6%. Aukninguna má rekja til 5% meiri umferðar um Keflavíkurflugvöll, hagstæðra vinda í svæðinu sem og aukinnar umferðar milli heimsálfa, en umferð milli flugvalla í Asíu og Norður-Ameríku eykst ár frá ári.