Hoppa yfir valmynd
4.1.2012

Mikil farþegaaukning á Keflavíkurflugvelli á síðasta ári

Flugfarþegum á Keflavíkurflugvelli fjölgaði um 17,9% á árinu 2011 miðað við árið 2010. Alls lögðu 2.112.017 farþegar leið sína um flugvöllinn á árinu, þar af tæplega 1,7 milljón á leið til og frá landinu sem er um 16,3% aukning. Á sama tíma fjölgaði skiptifarþegum, það er þeim farþegum sem millilenda á Keflavíkurflugvelli til að halda áfram för, um 25%, eða úr 330 þúsund í 412 þúsund farþega. Þetta er næstmesti farþegafjöldi sem farið hefur um flugvöllinn á einu ári og nálgast metárið 2007 með 2.182.232 farþega, og álíka hlutfallsleg aukning og varð árið 2004 eftir mikinn samdrátt í farþegaflugi í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í New York.
 
Fjölgun farþega undanfarin tvö ár er talin vísbending um að nýtt vaxtarskeið sé hafið í farþegaflugi eftir samdrátt í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Forráðamenn í flugi og ferðaþjónustu á Íslandi telja að þennan vöxt megi m.a. þakka athygli sem Ísland fékk í kjölfar eldgosanna á síðustu tveimur árum og góðum árangri markaðsátaksins Inspired by Iceland sem hrundið var af stað í maí 2010, auknu sætaframboði flugfélaganna í flugi til landsins sem og nýrra tækifæra sem opnast hafa með tilkomu Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúss.
 
Skiptifarþegum á Keflavíkurflugvelli hefur fjölgað um 73% frá árinu 2009 og heldur Isavia uppi öflugri markaðsstarfsemi til stuðnings íslenskri ferðaþjónustu í flugstöð Leifs Eiríkssonar m.a. í því augnamiði að hvetja þá til þess að velja Ísland sem áningarstað. Hafa auglýsingasvæði og kynningarmál í flugstöð Leifs Eiríkssonar verið endurskoðuð með skerptum áherslum á öfluga og jákvæða landkynningu.
 
Spáð er frekari farþegaaukningu á næstu árum og áætlar Isavia að farþegum á Keflavíkurflugvelli fjölgi um 7,5% á þessu ári. Icelandair hefur boðað að flugáætlun ársins 2012 verði sú umfangsmesta í sögu félagsins og ný flugfélög hafa boðað komu sína inn á markaðinn og önnur aukið sætaframboð sitt.
 
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Keflavíkurflugvallar www.kefairport.is