Hoppa yfir valmynd
11.4.2022
Mikil umferð um Keflavíkurflugvöll um páska.

Mikil umferð um Keflavíkurflugvöll um páska.

Búist er við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll kringum páska, eins og gerðist fyrir Covid-19-heimsfaraldurinn, og eru farþegar hvattir til að bóka bílastæði fyrir brottför.
Bókunarkerfi fyrir bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggir farþegum stæði um páskana og sömuleiðis er hægt að fá bílastæðin á betri kjörum en þegar greitt er við hlið. Því fyrr sem bókað er, því lægra verð fæst. Verð á sólarhring í langtímastæðum fyrir þá sem greiða við hlið án þess að bóka stæði fyrirfram er 1.750 krónur.
Farþegum er einnig bent á önnur úrræði sem í boði eru: ferðir með rútum og strætisvögnum, og bílastæðaþjónustu.