Hoppa yfir valmynd
17.5.2023
Netárás gerð á vefsíðu Isavia

Netárás gerð á vefsíðu Isavia

Netárás var gerð í morgun á vefsíðu Isavia, sem birtir flugupplýsingar fyrir alla íslenska áætlunarflugvelli. Síðan lá niðri í um það bil tvær klukkustundir. Um var að ræða svokallaða DDoS árás. Þá er framkölluð umferð á vefsíðuna með þúsundum sýndarnotenda til að gera hana óvirka. Tæknimönnum tókst að verjast árásinni og koma síðunni aftur upp. Þó getur það tekið lengri tíma fyrir einhverja notendur að komast inn á vefinn.

Um leið og netárásin var gerð var varasíða með aðgengi að flugupplýsingum um Keflavíkurflugvöll opnuð og vísað á hana á samfélagsmiðlum félagsins. Þá var hægt að nálgast upplýsingar um innanlandsflug á vef Textavarpsins og flugfélaganna og var einnig vísað þangað á samfélagsmiðlum innanlandsflugvalla.

 

Við biðjumst velvirðingar á vandamálum sem þetta kann að hafa valdið farþegum og viðskiptavinum okkar.