Hoppa yfir valmynd
26.2.2015
Niðurstaða hönnunarsamkeppni um þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar

Niðurstaða hönnunarsamkeppni um þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar

Hönnunarstofan Nordic - Office of Architecture í Noregi varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um gerð uppbyggingar- og þróunaráætlunar (Masterplan) Keflavíkurflugvallar til næstu 25 ára.

Sýning á tillögum sem bárust frá 6 alþjóðlegum hönnunarstofum hefur verið sett upp á skrifstofum Isavia á þriðju hæð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og verður hún opin almenningi kl. 9 – 16 alla virka daga til 20. mars næstkomandi.

Vinningstillagan þótti skara fram úr varðandi sjálfbærni og skipulags- og umhverfismál auk þess sem skýr stefna er sett í tekjusköpun á uppbyggingartíma og rík áhersla er á  samráð við hagsmunaaðila og nærsamfélag flugvallarins. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun flugstöðvarinnar til norðurs og lagningu nýrrar norður-suður flugbrautar vestan við flugvöllinn í framtíðinni.

 

Vinningshafinn reyndur í þróun flugvalla

Nordic - Office of Arthitecture hefur haft með höndum mörg stór þróunarverkefni svo sem stækkun flugvallanna í Osló, Björgvin og Zuzhny í Rússlandi. Verkefnastjóri tillögunnar er íslenskur og þekkir vel umhverfi Keflavíkurflugvallar. Samstarfsaðili Nordic í verkefninu er ráðgjafarfyrirtækið COWI A/S í Danmörku.

Fyrirtækið mun á næstu mánuðum  vinna að frekari útfærslu á tillögum sínum í samráði við Isavia og er stefnt að því að fullmótaðri uppbyggingar- og þróunaráætlun verði skilað í september næstkomandi. Verður hún unnin í nánu samráði við hagsmunaaðila flugvallarins og mun vera leiðarljós í framtíðarskipulagi svæðisins.

Önnur fyrirtæki sem þátt tóku í samkeppninni:

INECO Ingenierta Y Economia del Transporte SA á Spáni
Ramboll A/S í Danmörku
Naco Netherlands Airport Consultants í Hollandi
EC Harris LLP í Bretlandi
Mott MacDonald LTD í Bretlandi

Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia og formaður valnefndar:

„Valnefnd var einróma í niðurstöðu sinni og var sömuleiðis samhljómur í álitsgjöf hagsmunaaðila um vinningstillögu. Tillaga Nordic er vel útfærð og uppfyllir kröfur í þeim þáttum sem settir voru fram í samkeppnisgögnunum. Sett er fram heildstæð áætlun í umhverfismálum og gert ráð fyrir miklu og góðu samráði við hagsmunaaðila á öllum stigum skipulagsgerðarinnar. Þá er hugsað fyrir því að nýir tekjumöguleikar opnist í hverjum framkvæmdaáfanga og að tækifæri til tekjuöflunar opnist um leið og afkastageta er aukin.“ 

Tillaga Nordic - Office of Architecture (pdf 7 mb)