Hoppa yfir valmynd
21.3.2020
Ný reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen

Ný reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen

Ný reglugerð um för yfir landamæri var gefin út þann 20. mars 2020. Samkvæmt henni er útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins nema þeir geti sýnt fram á að för þeirra sé vegna brýnna erinda. Gildistíminn er til 17. apríl 2020.

Ríkisborgarar Schengen svæðisins og aðstandendur þeirra munu áfram geta komið óhindrað inn á svæðið. Sérstaklega er kveðið á um að útlendingar sem hafa dvalar- eða búseturétt innan svæðisins eigi einnig rétt á að koma. Þá eru ákveðnar starfsstéttir undanþegnar takmörkunum, þar á meðal starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og þeir sem sinna farmflutningum.

Reglugerðin tekur til ytri landamæra Schengen. Ríkisborgarar Schengen ríkja og fólk sem hefur dvarlar- og búseturétt þar getur ferðast milli ríkja innan svæðisins, en þá þarf að huga að þeim reglum um ferðir yfir landamæri sem hvert ríki Schengen hefur sett fyrir sig.

Reglugerðin er sett í kjölfar þess að þann 17. mars samþykkti leiðtogaráð Evrópusambandsins tilmæli til allra aðildarríkja sambandsins og annarra ríkja Schengen samstarfsins um að draga tímabundið úr ferðum fólks inn á Schengen svæðið til að hægja á útbreiðslu Covid-19. Tilmælin, sem gilda í 30 daga, kveða á um að takmarka skuli komur þriðju ríkisborgara á svæðið við nauðsynlegar erindagjörðir.

Reglugerðina má lesa hér

Tilkynningu dómsmálaráðuneytisins má lesa hér

Tilkynningu dómsmálaráðuneytisins á ensku má lesa hér (English)