Hoppa yfir valmynd
6.2.2014
Ný tækifæri í verslun og veitingaþjónustu á Keflavíkurflugvelli

Ný tækifæri í verslun og veitingaþjónustu á Keflavíkurflugvelli

Isavia efnir til forvals í næsta mánuði vegna aðstöðu til verslunar- og veitingareksturs í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Samningstími rekstraraðila í brottfarasal flugstöðvarinnar rennur út í árslok og hefur stjórn Isavia ákveðið að efna til nýs forvals á verslunar- og veitingarekstri.  Um leið verður ráðist í breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar og þjónustan endurskipulögð.  Áætlað er að endurskipan ljúki vorið 2015.

Ný tækifæri með breyttri samsetningu farþega

Farþegaflóran á Keflavíkurflugvelli er að breytast með mikilli aukningu erlendra farþega. Íslendingar voru helstu viðskiptavinir verslana og þjónustufyrirtækja en hlutfallið hefur breyst með fjölgun erlendra ferðamanna. Erlendir farþegar voru 66% af heildarfjölda árið 2013 og er áætlað að hlutfallið aukist í um 75% árið 2020. Breytingin mun hafa mikil áhrif á tilhögun og vöruframboð í verslunum og veitingasölu.
 
Eins og fram hefur komið hefur farþegafjöldi líka vaxið hröðum skrefum að undanförnu. Þannig lögðu alls um 2,8 milljónir farþega leið sína um flugvöllinn á síðasta ári, 15,6% fleiri en árið 2012 og spáð er 18% fjölgun á yfirstandandi ári Þá er áætlað að heildarfjöldi farþega verði orðinn rúmar 5 milljónir árið 2020.

Samstarf við alþjóðlega sérfræðinga

Isavia hefur leitað aðstoðar breska ráðgjafarfyrirtækisins Concession Planning sem er eitt virtasta fyrirtækið á sviði reksturs og skipulagningar smásölu á flugvöllum.
Ráða hefur einnig verið leitað hjá breska hönnunarfyrirtækinu Portland um hönnun á útliti og þema nýja verslunarsvæðisins. Fyrirtækið er margverlaunað fyrir verkefni á sviði smásölu og í ferðaiðnaði og hefur 20 ára reynslu af margskonar þjónustu við verslunarrekstur á flugvöllum.

Forval verður auglýst og kynnt ítarlega í mars

Dótturfélag Isavia, Fríhöfnin, mun sem fyrr hafa með höndum  sölu á hefðbundnum tollfrjálsum varningi á borð við áfengi, tóbak, sælgæti, ilm- og snyrtivörur og skyldar vörur.
Sérverslanir munu annast sölu annarra vöruflokka í einstökum verslunareiningum eða stærri deildarskiptum einingum með „búð í búð“ tilhögun.
 
Forvalið nær eingöngu til sérverslana og veitingastaða en ekki vöruflokka Fríhafnarinnar.

Nánari upplýsingar er að finna hér