Hoppa yfir valmynd
24.2.2023
Nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli

Nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli

Fjölbreytni og gleði verður allsráðandi á Keflavíkurflugvelli síðar á þessu ári þegar þrír nýir veitingastaðir opna. Niðurstaða liggur fyrir í nýjasta útboði Isavia og þau gleðitíðindi að Loksins lifir áfram! – en nú sem Loksins Café and Bar – á nýjum og stærri stað. Vöruúrval verður breiðara en áður og staðurinn lokaðri sem tryggir betri hljóðvist. Veitingastaðurinn Bakað verður á tveimur stöðum á flugvellinum. Þar verður boðið upp á ferskt brauðmeti og pizzur – hvort tveggja bakað á staðnum – með Ágúst Einþórsson, stofnanda BakaBaka, í fararbroddi. Þá verður boðið upp á úrval af heilsusamlegum djúsum, salötum og gæðakaffidrykki frá Te og kaffi. Hugsað hefur verið út í öll smáatriði en HAF studio sér um hönnun staðanna og tónlistin verður sérsniðin fyrir þá svo stemningin verði sem allra best.

 

Alls sóttu sex aðilar útboðsgögnin þegar opnað var fyrir aðgang að þeim 11. júlí 2022. Fimm aðilar skiluðu inn hæfis- og þátttökuyfirlýsingu og uppfylltu þeir allir hæfniskröfur útboðs og var boðið að skila inn tilboðum og taka þátt í viðræðuferlinu. Að fá fimm aðila inn í ferlið sem voru metnir hæfir er sérstaklega ánægjulegt og sýnir að rekstur í flugstöðinni er eftirsóttur. Á endanum skiluðu tveir aðilar inn tilboðum og var það Lagardère sem reyndist hlutskarpast.

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að fá fremstu bakara landsins og sterku íslensku vörumerkin Te og Kaffi og Brikk inn á flugvöllinn í samstarfi við Lagardère sem eru miklir sérfræðingar í flóknum veitingarekstri á flugvöllum.  Keflavíkurflugvöllur er í stöðugri þróun og um leið og farþegum fjölgar verða þarfirnar fjölbreyttari. Eins og við höfum þegar tilkynnt opna Jómfrúin og Elda á vormánuðum og með Loksins café and bar og Bakað teljum við okkur vera að mæta mjög vel ólíkum þörfum farþega og gera Íslandi hátt undir höfði.“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslana og veitinga hjá Isavia.

„Við hlökkum mikið til að hefja störf í flugstöðinni. Við munum baka allt á staðnum og ætlum að bjóða upp á fjölbreyttan og ferskan mat á góðum tíma. Við verðum með geggjað kaffi og almenna gleði,“ segir Ágúst Einþórsson bakari hjá BakaBaka.

Um útboðsferli Isavia 
Isavia býður út þjónustu á Keflavíkurflugvelli og er það liður í að gera rekstrarumhverfið samkeppnishæft. Isavia fylgir lögum og reglum um opinber innkaup og viðhefur jafnræði, gagnsæi og hagkvæmni. Útboðin eru byggð á grundvelli reglugerðar nr. 950/2017 um sérleyfissamninga um verk og þjónustu. Öll útboð eru auglýst á evrópska efnahagssvæðinu.