Hoppa yfir valmynd
1.10.2021
Nýtt fyrirkomulag á ástandsmati flugbrauta

Nýtt fyrirkomulag á ástandsmati flugbrauta

Nýtt fyrirkomulag hefur verið innleitt við mat á ástandi flugbrauta við vetraraðstæður og upplýsingagjöf til flugmanna um brautarástand á íslenskum alþjóða- og áætlanaflugvöllum. Það var innleitt 1. október. Einnig hefur sniðmáti og innihaldi SNOWTAM, nefnt Samhæft sniðmát (e. GRF Global Reporting Format) verið breytt.

Forsendur flugmanna við mat á afköstum loftfars við flugtak og lendingu breytast samhliða því að flugvélaframleiðendur aðlaga handbækur og/eða tölvukerfi flugvéla að nýja fyrirkomulaginu. Þá verður flugmönnum gert skylt að tilkynna ef brautarástand er með öðrum hætti en uppgefið.

Nýja fyrirkomulagið verður í samræmi við reglugerðarbreytingu Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins (EASA) á reglugerð 139/2014 fyrir flugvelli sem innleidd var  12. ágúst 2021 og mun Alþjóða Flugmálastofnunin (ICAO) innleiða sambærilegt fyrirkomulag á heimsvísu 4. nóvember 2021. Flugmálastjórn Bandaríkjanna (FAA) innleiddi sambærilegt verklag árið 2016.

Nánari upplýsingar má nálgast á eaip.isavia.is, á heimasíðu Isavia og The New Global Reporting Format for Runway Surface Conditions (icao.int).