Hoppa yfir valmynd
29.4.2010

Nýtt opinbert hlutafélag um sameinaða starfsemi Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. tekur til starfa 1.maí

Nýtt opinbert hlutafélag um sameinaðan rekstur Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. var stofnað samkvæmt lagaheimild 29. janúar síðastliðinn og tekur við rekstri áðurnefndra félaga laugardaginn 1. maí.  Starfsmenn nýja félagsins og dótturfélaga þess eru samtals um 650. Forstjóri félagsins er Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur.

Með sameiningu félaganna er stefnt að enn frekari hagræðingu og skilvirkni í rekstri flugvallar- og flugleiðsöguþjónustu í landinu og lagður grundvöllur að nýrri starfsemi og þjónustu á sviði flugs og viðskipta. Fjármálaráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu en samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur faglegt eftirlit með starfseminni.

Félagið Flugstoðir ohf. hefur starfað frá ársbyrjun 2007 og annast rekstur og uppbyggingu annarra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi ásamt flugleiðsöguþjónustu sem Ísland veitir fyrir alþjóðlegt flug og innanlandsflug.  Keflavíkurflugvöllur ohf. hefur starfað frá ársbyrjun 2009 og annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugvallarins og flugstöðvarinnar, þjónustu við flugrekendur og hagnýtingu flugvallarins í þágu öryggis- og varnarmála.

Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ýtir nýja félaginu úr vör og kynnir nafn félagsins við athöfn með starfsfólki og gestum í veitingahúsinu Nauthól í dag kl. 13.30.
 
Stjórn félagsins skipa Þórólfur Árnason formaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Arngrímur Jóhannsson, Ásta Rut Jónasdóttir, Jón Norðfjörð, Ragnar Óskarsson og Rannveig Guðmundsdóttir.