Hoppa yfir valmynd
10.12.2019
Öllu flugi aflýst á Keflavíkurflugvelli

Öllu flugi aflýst á Keflavíkurflugvelli

Öllu flugi til og frá Keflavíkurflugvelli eftir kl. 14 í dag, þriðjudaginn 10. desember, hefur verið aflýst af flugrekendum. Þá hefur öllu innanlandsflugi einnig verið aflýst í dag. Skiptiborði Isavia er lokað frá kl. 15.

Röskun getur orðið á flugi á morgun, miðvikudaginn 11. desember. Farþegar eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum um flugtíma á vef Isavia eða hjá viðkomandi flugfélögum. Hægt er að skrá sig fyrir flugtilkynningum um komur og brottfarir á Keflavíkurflugvelli á www.kefairport.is og fá þær með Messenger eða Twitter.