Hoppa yfir valmynd
18.5.2017
Opinn fundur um áhrif flugumferðar á Keflavíkurflugvelli á hljóðvist í byggð

Opinn fundur um áhrif flugumferðar á Keflavíkurflugvelli á hljóðvist í byggð

Miðvikudaginn 17. maí hélt Isavia opinn íbúafund fyrir íbúa á nærsvæði Keflavíkurflugvallar þar sem kynnt voru áhrif framkvæmda við flugbrautir á flugumferð og hljóðvist. Einnig voru kynntar niðurstöður hljóðmælinga á svæðinu sem og nýtt hljóðmælingakerfi sem opnað verður á vef Isavia í byrjun júní. Kerfið sýnir flugumferð og hljóðvist í rauntíma og hefur til að mynda reynst afar vel á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn og öðrum flugvöllum.

Þröstur Söring, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Keflavíkurflugvallar:

„Framkvæmdir á flugbrautakerfi flugvallarins hafa vissulega áhrif á flugumferð, þá sérstaklega í sumar þegar álagið er sem mest. Nú standa yfir framkvæmdir á brautarmótum og næst verður farið í framkvæmdir á austur-vestur flugbraut Keflavíkurflugvallar. Þetta þýðir að norður-suður braut verður eina brautin í notkun hluta sumars og viljum við hjá Isavia að allir íbúar sem búa á nærsvæði vallarins séu upplýstir um þær framkvæmdir sem standa yfir og áhrif þeirra. Einnig er verið að fjölga flugvélastæðum og munu tvö ný stæði opna í sumar. Áætlað er að framkvæmdum við flugbrautirnar ljúki í haust en þetta eru stærstu framkvæmdir á flugbrautunum í áratugi.“

Valur Klemensson, deildarstjóri umhverfisdeildar Keflavíkurflugvallar:

„Á næstu dögum mun Isavia taka í gagnið nýtt hljóðmælingakerfi frá danska fyrirtækinu Brüel & Kjær og hefur Isavia lagt mikla áherslu á aukna hljóðstigsvöktun í kjölfar aukinnar flugumferðar um svæðið. Við höfum sett upp þrjá mæla við jaðar byggðarinnar í kringum flugvöllinn sem mæla hljóðvist einstakra flugvéla í rauntíma. Íbúar geta fylgst með þessum mælingum á vefnum og gefst tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum varðandi einstaka flugvélar í gegnum nýja kerfið. Með þessu móti hafa íbúar í höndunum meiri upplýsingar um umferðina og flugferlana sem flognir eru og geta því sent ítarlegri athugasemdir varðandi hljóðmengun af flugumferð. Að sama skapi verður auðveldara fyrir Isavia að vinna úr athugasemdunum og komast þær í fastara ferli. Auk hljóðmælinganna mun Isavia einnig hefja loftgæðamælingar þar sem áhersla verður lögð á að kanna útblástur nituroxíða frá flugumferð yfir byggð í grennd við flugvöllinn.“

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar ávörpuðu einnig fundinn og í lok hans gafst íbúum tækifæri til að spyrja frummælendur spurninga. Bárust margar spurningar úr sal og höfðu íbúar áhyggjur af hljóðmengun vegna aukinnar flugumferðar um völlinn. Fram kom að hljóðmælingarnar verði notaðar til þess að prófa og móta nýja flugferla í samstarfi við flugfélögin sem nota Keflavíkurflugvöll og þannig verði stefnt að því að minnka hljóðmengun í byggð eins og kostur er.

Hér er að finna upptöku af fundinum