Hoppa yfir valmynd
23.5.2019
OPTICAL STUDIO OG MATHÚS FENGU ÞJÓNUSTUVERÐLAUN

OPTICAL STUDIO OG MATHÚS FENGU ÞJÓNUSTUVERÐLAUN

Þjónustuverðlaun Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2018 voru afhent við hátíðlega athöfn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni. Að þessu sinni féllu þjónustuverðlaun verslana í hlut sjóntækjaverslunarinnar Optical Studio. Þjónustuverðlaun veitingastaða hlaut Mathús, sem rekið er af Lagardére. Niðurstaðan nú, sem fyrr, byggir á markaðsrannsóknum og könnunum sem gerðar eru á Keflavíkurflugvelli.

Isavia hefur síðustu ár verðlaunað rekstraraðila á Keflavíkurflugvelli fyrir framúrskarandi þjónustu. Verslanir og veitingastaðir eru verðlaunaðir fyrir að skara fram úr í þjónustu við farþega sem fara um flugvöllinn. Litið er meðal annars til þess hvernig afgreiðslufólk nálgast viðskiptavini og hvort bæði vörur og upplýsingar um verð séu aðgengilegar.

Isavia leggur áherslu á góða þjónustu við ferðafólk í flugstöðinni. Rekstraraðilar eru í beinum tengslum við farþega og eru hvattir til að tryggja sem besta þjónustu. Liður í því eru þjónustunámskeið og verðlaun fyrir vel unnin störf.