Hoppa yfir valmynd
13.10.2022
Orkuskipti í flugi handan við hornið

Orkuskipti í flugi handan við hornið

Isavia stóð ásamt Icelandair, Landsvirkjun og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) fyrir opnum morgunfundi um orkuskipti í flugi fimmtudaginn 13. október. Fundurinn var haldinn í tengslum við þing Hringborðs Norðurslóða (Arctic Circle). Farið var yfir stöðuna í orkuskiptum á breiðum grundvelli, frá sjónarhóli flugvélaframleiðenda, flugfélaga, flugvallarekenda og orkuframleiðenda. Fundinum var streymt og má nálgast upptöku hér.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra flutti opnunarávarp og ræddi meðal annars um mikilvægi loftslagsmarkmiða og nauðsyn þess að stjórnvöld og einkaaðilar ynnu saman að því að ná þeim. Sprotafyrirtækið Universal Hydrogen lýsti áformum sínum um vetnisvæðingu flugvéla sambærilegra þeim sem notaðar eru í innanlandsflug á Íslandi. Fyrirtækið hefur metnaðarfullar áætlanir og telur að flug á stuttum flugleiðum gæti gengið fyrir grænu vetni á þessum áratug. Þar sé Íslandi í góðri stöðu vegna stuttra flugleiða innanlands og aðgangs að umhverfisvænni orku. Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus fór yfir framtíðaráætlanir félagsins um samdrátt á útblæstri á lengri flugleiðum og markmið sín um að koma á markaðinn flugvél sem gengur fyrir hreinum orkugjöfum fyrir árið 2035. Airbus hefur minnkað útblástur flugvéla sinna umtalsvert undanfarið en vinnur einnig að þróun og tilraunum varðandi sjálfbært flugvélaeldsneyti, vetni og rafmagn.
Sigrún Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, sagði að Ísland og íslenska innanlandsflugvallakerfið gætu orðið að góðu tilraunaverkefni þegar kæmi að orkuskiptum í flugi hvort sem þar er um rafmagn eða vetni að ræða. „Það er stutt á milli áfangastaða og hægt að nota hundrað prósent endurnýjanlega orkugjafa í verkefnið,“ segir Sigrún. „Mikil uppsöfnuð viðhaldsþörf er í innanlandsflugvallakerfinu hér á landi og gæti kostnaðurinn numið nokkrum milljörðum íslenskra króna. Ef bara er horft til hleðslustöðva fyrir framtíð flugs hefur hollenska ráðgjafafyrirtækið NACO Consulting metið það svo að þegar kemur að uppsetningu á 400 kílóvatta hleðslustöðvar nemi kostnaðurinn um 140 milljónum króna. En það er mikilvægt að viðhalda okkar góða flugvallakerfi og allt eru þetta fjárfestingar sem skila sér til framtíðar og styrkir almenningssamgöngukerfi Íslands.“
Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, sagði að flugsamgöngur væru mikilvægar fyrir lífsgæði og efnahag í heiminum, sérstaklega fyrir eyþjóðir eins og Ísland. „Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið og stefnum að því að minnka losun um 50% fyrir hvern tonnkílómetra fyrir árið 2030. Við teljum Ísland geta orðið í fremstu röð í heiminum hvað varðar umhverfisvænar flugsamgöngur innanlands og til framtíðar gætum við orðið miðstöð umhverfisvæns alþjóðaflugs á Norður-Atlantshafinu. Til þess að þetta geti gerst er nauðsynlegt að við vinnum saman, einkafyrirtæki, fyrirtæki í ríkiseigu, stjórnvöld og hagsmunasamtök.“
Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun, sagði Ísland vera í einstakri stöðu þegar kæmi að því að klára orkuskiptin. „Íslendingar hafa þegar gengið í gegnum umbreytingar á hita- og raforkukerfinu sem aðrar þjóðir standa nú frammi fyrir. Skuldbindingar Íslands til ársins 2030 samkvæmt Parísarsamkomulaginu eru skýrar og sömuleiðis markmið ríkisstjórnarinnar fyrir 2040. Íslendingar verða að skipta út jarðefnaeldsneyti í samgöngum. Mikil tækifæri eru til orkuskipta í flugi og hefur tækniþróun síðustu ára sýnt að orkuskiptin eru nær í tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, bæði í flugvélum og á flugvöllum. Mikil vinna er framundan og teljum við hjá Landsvirkjun að samráð og samstarf séu lykillinn að því að byggja upp þá aðfangakeðju sem þarf fyrir nýja orkugjafa í samgöngum á Íslandi.“
Fundarstjóri á fundinum var Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta og sjálfbærni hjá Icelandair og stjórnarmaður hjá SAF.