Hoppa yfir valmynd
16.3.2022
Óveður gæti haft áhrif á flug 17. mars

Óveður gæti haft áhrif á flug 17. mars

Vegna óveðurs getur orðið röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli fimmtudaginn 17. mars. Veðurspá gerir ráð fyrir miklum vindi og snjókomu. 

Farþegar eru hvattir til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um flugtíma á vef Keflavíkurflugvallar eða hjá viðkomandi flugfélögum. Hægt er að skrá sig fyrir flugtilkynningum vegna komu eða brottfara á vef Keflavíkurflugvallar og fá þær tilkynningar á Messenger, Twitter eða með tölvupósti. 

Veðrið kann einnig að hafa áhrif á flug til og frá innanlandsflugvöllum. Upplýsingar má nálgast hjá flugfélögum og á vefsíðum viðkomandi flugvalla. 

Farþegar eru einni hvattir til að fylgjast vel með færð á vegum á vef Vegagerðarinnar en þar má finna m.a. upplýsingar um vegalokanir vegna óveðursins og þá hver staðan er varðandi umferð um Reykjanesbraut til og frá Keflavíkurflugvelli.