Hoppa yfir valmynd
13.3.2022
Óveður hefur áhrif á flug um Keflavíkurflugvöll 14. mars

Óveður hefur áhrif á flug um Keflavíkurflugvöll 14. mars

Vegna óveðurs verður röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli frá morgni mánudagsins 14. mars og fram til síðdegis þann dag. Veðurspá gerir ráð fyrir miklum vindi og rigningu.

Farþegar eru hvattir til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um flugtíma á vef Keflavíkurflugvallar eða hjá viðkomandi flugfélögum. Hægt er að skrá sig fyrir flugtilkynningum vegna komu eða brottfara á vef Keflavíkurflugvallar og fá þær tilkynningar á Messenger, Twitter eða með tölvupósti.

Óveðrið hefur einnig áhrif á innanlandsflug þann 14. mars og eru farþegar hvattir til að fylgjast með upplýsingum um flug hjá viðkomandi flugfélögum eða á vefsíðum viðkomandi flugvalla.