Hoppa yfir valmynd
15.11.2022
Reykjanesbraut lokað vegna malbikunarframkvæmda

Reykjanesbraut lokað vegna malbikunarframkvæmda

Vegna malbikunarframkvæmda verður Reykjanesbraut lokuð fyrir umferð frá Grindavíkurvegi í átt að Reykjavík, að álverinu í Straumsvík, frá klukkan 19:00 fimmtudaginn 17. nóvember og til klukkan 12:00 föstudaginn 18. nóvember. Til stendur að malbika Reykjanesbraut á um 2,7 km kafla við álverið í Straumsvík.

Reykjanesbrautin verður opin fyrir umferð til Suðurnesja og á flugvöllinn allan framkvæmdatímann. Vegurinn verður lokaður við Grindavíkurveg, fyrir umferð í átt til Reykjavíkur, en opið verður fyrir þá sem eiga erindi í Voga.

Hjáleið verður um Grindavíkurveg (43), Suðurstrandarveg (427) og Krýsuvíkurveg (42) fyrir þá sem eru á leið til höfuðborgarinnar. Sú leið er lengri og því þurfa ökumenn að gera ráð fyrir lengri ferðatíma. Einnig er bent á að umferðartafir gætu orðið nokkrar og ökumenn beðnir um að aka varlega og sýna tillitssemi.

Nánar um málið á vef Vegagerðarinnar.

Upphaflega var gert ráð fyrir lokun frá kl. 20 miðvikudagskvöldið 16. nóvember til kl. 20 fimmtudagskvöldið 17. nóvember en ofangreind breyting var gerð á malbikunartíma þar sem ekki reyndist unnt að ljúka verkinu á upphaflega tímanum vegna veðurs. Nánar um breytinguna á vef Vegagerðarinnar.