Hoppa yfir valmynd
21.6.2019
SAMIÐ VIÐ HS ORKU UM RAFORKUKAUP ISAVIA

SAMIÐ VIÐ HS ORKU UM RAFORKUKAUP ISAVIA

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, hafa undirritað samning um raforkukaup Isavia. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs þar sem HS Orka var lægstbjóðandi. Samningurinn gildir næstu fjögur árin með heimild til framlengingar tvisvar sinnum um tvö ár í senn, þannig að heildarsamningstími getur orðið átta ár.

„Með samningnum nær Isavia fram hagræði í raforkukaupum ásamt því að hann er liður í að minnka kolefnisfótspor Isavia þar sem gerð er krafa um að öll keypt raforka sé endurnýjanleg,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Hægt verður að kalla eftir uppruna- og hreinleikavottorði hvenær sem er á samningstíma.“