Hoppa yfir valmynd
11.9.2017
Stærsta sumar frá upphafi á Keflavíkurflugvelli

Stærsta sumar frá upphafi á Keflavíkurflugvelli

  • Met slegin í farþegafjölda
  • Starfsemin á flugvellinum gekk mjög vel í sumar
  • Aukning á framboði flugsæta næsta vetur

Farþegar á Keflavíkurflugvelli á tímabilinu janúar til ágúst voru 5.954.761 og er það 32,4% aukning frá sama tímabili í fyrra. Fjöldinn er í takt við farþegaspá Isavia sem gefin var út í lok árs 2016, en þá var því spáð að 5.921.693 farþegar færu um völlinn á fyrstu 8 mánuðum ársins, sem er einungis 0,54% færri en raunin varð. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi farþega verði á bilinu 8,7 - 8,8 milljónir árið 2017 sem yrði þá um 28% aukning frá árinu 2016. Skipting farþega er í samræmi við spár en um þriðjungur farþega flugvallarins eru tengifarþegar en aðrir farþegar skiptast í komu og brottfararfarþega.

Eins og undanfarin ár var sumarið annasamasti tíminn, en sumarið (júní – ágúst) var það stærsta á flugvellinum hingað til. Í fyrsta sinn í sögunni fóru yfir ein milljón farþega í gegnum flugvöllinn á einum mánuði og gerðist það í júlí og aftur í ágúst. Stærsti dagur sumarsins var 6. ágúst þegar 40.147 farþegar fóru í gegnum flugvöllinn, en það er 19% fleiri farþegar en á stærsta deginum í fyrra sumar.

Heilt yfir gekk umferð um flugvöllinn mjög vel í sumar og hafa þær afkastaaukandi framkvæmdir sem ráðist hefur verið í síðastliðin misseri skilað árangri. Biðtími í öryggisleit á flugvellinum var undir 5 mínútum hjá 88% farþega í ágústmánuði þrátt fyrir sögulegan fjölda farþega. Þá voru flug almennt oftar á réttum tíma miðað við sama tímabil í fyrra. Í sumar ákvað Isavia í samráði við Icelandair, Primera og Wow air að bjóða uppá innritun frá 12 á miðnætti fyrir þá sem áttu bókað morgunflug. Nokkur fjöldi farþega nýtti sér þessa auknu þjónustu sem skilaði dreifðara álagi í innritun og öryggisleit.

Vetraráætlun Keflavíkurflugvallar er orðin opinber, en á tímabilinu nóvember til mars 2018 er gert ráð fyrir um 830 þúsund auka sætum í boði frá sama tímabili í fyrra, eða um 27% aukning. Heildar framboð flugsæta verður um 3,8 milljónir í vetur en var um 3 milljónir síðastliðinn vetur.  Alls verða það 15 flugfélög sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli í vetur til 69 áfangastaða.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia:

„Það er frábært að verða vitni að því góða starfi sem unnið er á Keflavíkurflugvelli, hvort sem er hjá starfsfólki Isavia eða rekstraraðila á flugvellinum. Fjöldi farþega í sumar, og í raun alla mánuði þessa árs er sögulegur eins og vöxtur ferðaþjónustunnar og flugsins í heild. Það er því mikilvægt að starfsemin á flugvellinum, í flugumferðarþjónustu og annarri tengdri starfsemi gangi vel og snurðulaust fyrir sig þannig að upplifun farþega verði jákvæð við komu til landsins sem og við brottför. Ég vil því þakka starfsfólki á Keflavíkurflugvelli sem og starfsmönnum Isavia í heild fyrir frábært starf í sumar sem og síðastliðin ár við krefjandi aðstæður“