
Styrktarsjóður Isavia: Afhending búnaðar til þriggja björgunarsveita
Hjálparsveit skáta í Reykjavík, Björgunarsveitin Kjölur, Kjalarnesi og Björgunarsveit Hafnarfjarðar fengu á föstudaginn 8. febrúar formlega afhentan búnað sem keyptur var fyrir framlag úr styrktarsjóði Isavia á síðastliðnu ári. Búnaðurinn er af ýmsum toga og mun nýtast sveitunum vel. Tilgangurinn er að efla sveitirnar í hlutverki þeirra í flugslysaáætlunum Isavia.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík hlaut styrk til kaupa á fjórum töskum sem sameina allan neyðarbúnað sveitarinnar í hverju farartæki. Þar er nú að finna bráðaflokkunartösku, nýja súrefniskúta, blóðþrýstingsmæla, reykbombur, neyðarblys og fjöldamargt annað. Nýju töskurnar eru mjög handhægar og vel skipulagðar og þeim má breyta í bakpoka sem auðvelt er að grípa með sér.
Björgunarsveitin Kjölur hlaut styrk til kaupa á mjög handhægu bakbretti sem nýtist vel við þröngar aðstæður. Brettið má brjóta saman og stilla á lengdina með höfuðpúðum en það er borið í bakpoka og auðvelt er að koma hinum slasaða á brettið án mikillar hreyfingar.
Björgunarsveit Hafnarfjarðar hlaut styrk til kaupa á sterkum og góðum sjúkrabörum og öðrum búnaði. Börurnar eru gerðar eftir nýrri hönnun með ýmsum fylgibúnaði á borð við einangrunarpoka sem klæða má sjúklinga í til þess að halda á þeim hita. Sjúkrabörurnar eru auðveldar í flutningi og þær má nota við röntgen- og sneiðmyndatöku.
Um Styrktarsjóð Isavia
Styrktarsjóður Isavia var stofnaður árið 2011 með það fyrir augum að efla hópslysaviðbúnað björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Björgunarsveitirnar gegna lykilhlutverki í flugslysaáætlunum og hópslysaviðbúnaði landsins og allra hagur að björgunarsveitir séu sem best búnar. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja sveitir nærri áætlunarflugvöllum Isavia til kaupa á tækjum og búnaði eða til þess að efla menntun og þjálfun björgunarsveitarmanna. Úthlutun úr Styrktarsjóði Isavia fer fram árlega og nam úthlutun á nýliðnu ári 12 milljónum króna til 18 björgunarsveita. Stefnt er að því að veita átta milljónum króna úr sjóðnum á þessu ári.
Frá vinstri: Richarður Þór Ásgeirsson þjónustustjóri Reykjavíkurflugvallar, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Katrín Möller og Einar Ragnar Sigurðsson frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík.