Hoppa yfir valmynd
10.12.2018
 SUPER BREAK FLÝGUR AFTUR TIL OG FRÁ AKUREYRARFLUGVELLI

SUPER BREAK FLÝGUR AFTUR TIL OG FRÁ AKUREYRARFLUGVELLI

Breska flugfélagið Titan Airways hefur hafið beint áætlunarflug til Akureyrar fyrir bresku ferðaskrifstofuna Super Break. Fyrsta ferðin var farin mánudaginn 10. desember 2019 á einni af stærri vélum Titan Airways, af gerðinni Airbus A321. Lendingin á Akureyrarflugvelli gekk vel.

Þetta er annan veturinn í röð sem Super Break býður upp á beinar ferðir frá Bretlandi til Akureyrar. 122 farþegar komu með fyrstu ferð vetrarins í dag. Áætlað er að það verði flogið alls tuttugu og níu sinnum frá nokkrum borgum í Bretlandi til Akureyrar og aftur til Bretlands. Áætlað er að boðið verði upp  á 200 sæti í hverri ferð. Áætlað er að sú síðasta verði farin í byrjun mars 2019.

Flugmenn Titan Airways hafa gengist undir sérstaka þjálfun í flughermum til að kynnast aðstæðum á Akureyrarflugvelli. Auk þess komu þeir til æfinga á Akureyri.

„Við erum hæstánægð með að vera komin aftur til Norðurlands fyrir fyrsta flug vetrarins. Í dag var flogið frá Exeter, einum af þeim 18 flugvöllum sem flogið verður frá í þessum 29 ferðum. Þeirra á meðal eru líka flugvellirnir í Inverness, á Isle of Man og Jersey, í Derry, Newquay og London Southend en frá þessum völlum förum við í fyrsta sinn. Við höfum unnið náið með Markaðsstofu Norðurlands, samstarfsfyrirtækjum okkar á Norðurlandi, Isavia og Titan Airways til að tryggja að við séum sem best undirbúin fyrir komu 4500 ferðamanna á okkar vegum frá desember og fram í mars. Ég er viss um að þeir hlakki líka til að koma hingað og njóta hlýlegra móttöku heimafólks, eins og við höfum fengið að kynnast síðustu 18 mánuði,“ segir Chris Hagan, hjá Super Break.

„Við erum líka ánægð með að geta boðið Norðlendingum flugsæti til Bretlands, sem skapar í fyrsta sinni tækifæri á beinum tengingum við hin ýmsu héruð Bretlands sem ekki hafa áður verið í boði. Verðin eru frá aðeins 99 pundum og við munum auglýsa nánari upplýsingar í Dagskránni í hverri viku,“ segir Hagan.

Hægt að finna upplýsingar um ferðir Super Break á vef ferðaskrifstofunnar, www.superbreak.com