
Tækifæri fyrir rekstur á tveimur veitingastöðum og gleraugnaverslun á Keflavíkurflugvelli
Isavia mun bjóða út tækifæri fyrir rekstur á tveimur veitingastöðum og gleraugnaverslun á Keflavíkurflugvelli á næstunni.
Veitingatækifæri
Útboðsgögnin fyrir veitingatækifærið verða gefin út mánudaginn 28. mars og í kjölfarið verður haldinn kynningarfundur miðvikudaginn 30. mars.
Gleraugnaverslun
Tækifærið fyrir rekstur á gleraugnaversluninni er í mótun og til að tryggja að það falli sem best að þörfum og kröfum markaðarins er áhugasömum rekstraraðilum um tækifærið boðið að taka þátt í stuttri markaðskönnun. Svörunin er á engan hátt bindandi til tilboðs og líklegt er að frekara samtal verið í formi funda í framhaldi. Svörum við spurningum og öðrum gögnum skal skila í gegnum útboðsvef Isavia eigi síðar en miðvikudaginn 2. mars 2022 kl. 12:00.
Nánari lýsingu á veitingatækifærinu og markaðskönnunina fyrir gleraugnaverslunina má nálgast á útboðsvef Isavia.