Hoppa yfir valmynd
9.7.2012

Tilkynning frá Isavia vegna öryggisatviks er tveir menn komust inn á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar

Liðna helgi komust tveir ungir hælisleitendur inn á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar og fundust um borð í vél Icelandair við reglubundna skoðun. Isavia lítur mjög alvarlegum augum á atvikið en bendir á að öryggiskerfið hafi virkað þar sem að áhöfn Icelandair hafi fylgt forskrifuðum verklagsreglum í hvívetna og fundið mennina áður en vélin fór í loftið.

Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins og liggur niðurstaða rannsóknar ekki endanlega fyrir. Isavia hefur veitt lögreglunni aðgengi að öllum gögnum sem kunna að varpa ljósi á hvernig mennirnir komust inn á svæðið og í flugvélina. Isavia tók þá ákvörðun að veita ekki upplýsingar um málið fyrr en það lá fyrir með hvaða hætti mennirnir komust inn á svæðið. Ljóst er að mennirnir fóru ekki í gegnum öryggishlið inn á flugvallarsvæðið né í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fóru þeir yfir girðingu inn á svæðið og þaðan inn á flughlaðið við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Öryggisdeild Isavia, sem fer með öryggis- og flugverndarmál á Keflavíkurflugvelli, starfar eftir mjög ströngu verklagi sem samþykkt er af Flugmálastjórn Íslands. Við skoðun á verklagi öryggisstarfsmanna Isavia á þeim tíma er viðkomandi atvik átti sér stað kemur ekkert athugavert í ljós við störf þeirra. Hælisleitendurnir hafa greinilega verið vel skipulagðir.

Í ljósi alvarleika málsins mun Isavia yfirfara öryggiseftirlit með starfssemi á svæðinu, þrátt fyrir að öryggiskerfið hafi virkað í þessu tilviki.