Hoppa yfir valmynd
3.11.2021
Tvö tilboð bárust vegna viðbyggingar við Akureyrarflugvöll

Tvö tilboð bárust vegna viðbyggingar við Akureyrarflugvöll

Tvö tilboð bárust Isavia Innanlandsflugvöllum í viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Tilboðin bárust frá verktakafyrirtækjunum Húsheild og Hyrna. Tilboð Húsheildar hljóðar upp á tæpar 865 milljónir króna en tilboð Hyrnu upp á rúmar 810 milljónir króna.

Verkefnið felur í sér viðbyggingu við núverandi flugstöð og breytingu á núverandi húsnæði flugstöðvarinnar og nánasta umhverfi. Fyrsta skóflustunga að viðbyggingunni var tekin í júní síðastliðnum.

„Nú verður farið ítarlega yfir þessi tvö tilboð sem bárust,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Verkefnið sem hér um ræðir er 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina með góðri aðstöðu fyrir toll og lögreglu, fríhöfn og veitingastað. Áætlað er að heildarverkefninu verið lokið síðsumars 2023.“