Hoppa yfir valmynd
3.5.2013
Umfangsmikil hópslysaæfing á Akureyrarflugvelli 4. maí

Umfangsmikil hópslysaæfing á Akureyrarflugvelli 4. maí

Frá flugslysaæfingu sem haldin var á Þórshöfn nýverið.

Á fjórða hundrað manns taka þátt í flugslysaæfingu sem haldin verður á Akureyrarflugvelli á laugardaginn. Æfingin byggir á flugslysaáætlun flugvallarins og verða þátttakendur frá öllum viðbragðsaðilum á svæðinu. Isavia stendur fyrir reglubundnum æfingum af þessu tagi í samstarfi við viðbragðseiningar og ráðgjafa frá höfuðborgarsvæðinu.

Flugslysaæfingar eru almannavarnaæfingar þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss eru prófaðir, þ.m.t. slysarannsókn og úrvinnsla. Líkt verður eftir því að stórri farþegaflugvél hlekkist á við flugvöllinn. Æfðar verða björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda. Sérstaklega reynir á virkni áætlunarinnar, samhæfingu vegna flutnings á slösuðum, boðunarkerfi, stjórn, samhæfingu, fjarskipti, rannsókn á vettvangi og fleira.

Margar starfseiningar taka þátt í æfingunni, starfsfólk Isavia á Akureyrarflugvelli, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningaaðilar, Landhelgisgæslan, starfsfólk fjórðungssjúkrahússins, björgunarsveitir, almannavarnir, Rauðikrossinn, prestar, flugfélög og rannsóknaraðilar auk annarra og hefur undirbúningur staðið um nokkurra mánaða skeið.

Flugslysaæfingar af þessu tagi nýtast einnig mjög vel til samhæfingar viðbragða við hvers kyns vá eða hópslysi. Isavia stendur fyrir tveimur til þremur flugslysaæfingum á ári en á hverjum flugvelli er stór flugslysaæfing á fjögurra ára fresti.