Hoppa yfir valmynd
21.4.2013
Umfangsmikil hópslysaæfing á Þórshöfn á Langanesi tókst með ágætum

Umfangsmikil hópslysaæfing á Þórshöfn á Langanesi tókst með ágætum

Á annað hundrað manns tóku þátt í flugslysaæfingu sem haldin var við Þórshafnarflugvöll á Langanesi í gær, laugardaginn 20. apríl. Æfingin byggði á flugslysaáætlun flugvallarins með þátttöku allra viðbragðsaðila en Isavia stendur fyrir reglubundnum æfingum af þessu tagi í samstarfi við viðbragðseiningar auk ráðgjafa frá höfuðborgarsvæðinu.

Flugslysaæfingar eru almannavarnaæfingar þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss eru prófaðir, þ.m.t. slysarannsókn og úrvinnsla. Líkt var eftir því að flugvél með tuttugu manns innanborðs hlekkist á við flugvöllinn. Æfðar voru björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda. Sérstaklega reyndi á virkni áætlunarinnar, samhæfingu vegna flutnings á slösuðum frá Þórshöfn til sjúkrahúsa á Akureyri og í Reykjavík, boðunarkerfi, stjórn, samhæfingu, fjarskipti, rannsókn á vettvangi, samskipti við fjölmiðla og fleira.

Framkvæmd æfingarinnar tókst vel að sögn Árna Birgissonar samræmingarstjóra hjá Isavia og var samhæfing og samvinna viðbragðsaðila til fyrirmyndar. Umfangsmikill undirbúningur hefur staðið um nokkurra mánaða skeið og er öllum þátttakendum í æfingunni þakkað mikilvægt framlag og góð frammistaða. Flugslysaæfingar af þessu tagi nýtast einnig mjög vel til samhæfingar viðbragða við hvers kyns vá eða hópslysi.

Myndirnar tók Sóley Vífilsdóttir.