Hoppa yfir valmynd
16.1.2012
Umferðarmet í íslenska flugstjórnarsvæðinu árið 2011

Umferðarmet í íslenska flugstjórnarsvæðinu árið 2011

Alls fóru 111.489 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á nýliðnu ári, að ótöldu innanlandsflugi, og er það 9% aukning miðað við árið 2010. Árið 2008 trónaði áður á toppnum en þá fóru 110.366 flugvélar um svæðið.

Íslenska flugstjórnarsvæðið er eitt stærsta flugstjórnarsvæði í heimi og liggur í geira norðan frá Norðurpól, vestan við Grænland, austur undir Noreg og suður á 61. gráðu norðlægrar breiddar, alls 5,4 milljón ferkílómetrar. Flugumferðarstjórn og flugfjarskipti fara fram í flugumstjórnarmiðstöð og flugfjarskiptamiðstöð Isavia í Reykjavík og starfa alls um 150 manns við þessa þjónustu. Árlegur kostnaður er um 3,2 milljarðar króna sem greiðist af notendum samkvæmt samningi Alþjóðaflugmálstjórnarinnar við Isavia.

Spár fyrir árið 2011 höfðu bent til 4% umferðaraukningar miðað við fyrra ár en segja má að nánast hver mánuður hafi komið á óvart. Fimm daga eldgos í Grímsvötnum í maí olli talsverðum afturkipp en það hafði þó ekki áhrif á að heildarumferð ársins yrði hærri en nokkru sinni fyrr.

Isavia áætlar að 4% umferðaraukning verði í íslenska flugstjórnarsvæðinu árið 2012.