Hoppa yfir valmynd
28.3.2018
Útboð á aðstöðu fyrir veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Útboð á aðstöðu fyrir veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Isavia hefur opnað fyrir aðgang að gögnum vegna útboðs fyrir útleigu á aðstöðu fyrir veitingaþjónustu á annarri hæð í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.

Óskað er eftir eftir áhugasömum aðilum til þátttöku í valferlinu sem hafa reynslu af veitingarekstri og yfir að ráða vörumerki sem býður m.a. upp á pítsur í sneiðum og fersk salöt.

Í valferlinu verður notast við samkeppnisviðræður og síðan samið við þann aðila sem skilar að endingu inn besta tilboðinu.

Fram kom í farþegaspá Isavia fyrir árið 2018, sem kynnt var í nóvember síðastliðnum, að ríflega 10 milljón farþegar fara um Keflavíkurflugvöll í ár. Það eru 18% fleiri en í fyrra. Fjölgunin er mest á meðal skiptifarþega, sem millilenda einvörðungu á leið sinni á milli Evrópu og Norður-Ameríku, en þar er spáð 33% aukningu.

Nýja veitingaaðstaðan í suðurbyggingu flugstöðvarinnar verður liður í aukinni þjónustu við þessa ferðalanga. Áhersla verður lögð á tengingu við Ísland í hönnun á veitingarýminu þar sem kannanir sýna að farþegarnir sem fara þarna um vilji upplifa að þeir séu staddir á Íslandi.

Í útboðinu er byggt á markaðsrannsóknum meðal tengifarþega sem sýna að þeir vilja einfalda matvöru sem er tilbúin á skömmum tíma. Þar kom fram að helst vildu þeir pítsur og ferskt salat.

Nánari upplýsingar um útboðið sjálft og útboðsgögn vegna þess má finna hér