Hoppa yfir valmynd
10.6.2019
VEGNA FRÉTTA AF KOMU TYRKNESKA KARLALANDSLIÐSINS Í KNATTSPYRNU TIL ÍSLANDS

VEGNA FRÉTTA AF KOMU TYRKNESKA KARLALANDSLIÐSINS Í KNATTSPYRNU TIL ÍSLANDS

Vegna frétta af komu tyrkneska karlalandsliðsins í knattspyrnu til Ísland er rétt að árétta að brottfararflugvöllur landsliðshópsins í Tyrklandi er ekki hluti af skilgreindu heildstæðu öryggissvæði, eða One Stop Security, sem gildir fyrir flugvelli í ríkjum ESB og á EES-svæðinu eða í þeim löndum sem gert hafa sérstaka samninga um það. Isavia er því skylt að framkvæma öryggisleit á öllum farþegum sem koma frá slíkum flugvöllum. Íslenskir farþegar, svo og farþegar allra annarra þjóða  sem koma frá flugvöllum utan One Stop Security þurfa að fara í gegnum sama ferli.

Öryggi farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll er eitt af grunngildum Isavia og öryggisreglur þær sem fylgt er á flugvellinum eru settar á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga.

Öryggisleitin gengur vanalega fljótt fyrir sig en í gærkvöldi tók leitin þó lengri tíma þar sem leita þurfti að raftækjum og vökva í óvanalega mörgum töskum farþega með vélinni þar sem óskum um að slíkt væri fjarlægt úr töskum var ekki sinnt í öllum tilfellum.

Ferlið gekk þó fljótt fyrir sig. Flugvél tyrkneska liðsins kom í stæði á Keflavíkurflugvelli um kl. 19:40 í gærkvöld og voru síðustu farþegar komnir út um tollsal um kl. 21. Ferlið í heild sinni hefur því tekið um 80 mínútur.