Hoppa yfir valmynd
20.7.2021
Wizz Air hefur flug milli Keflavíkurflugvallar og Rómar

Wizz Air hefur flug milli Keflavíkurflugvallar og Rómar

Ungverska flugfélagið Wizz Air hóf í gær beint flug milli Íslands og Róm í fyrsta sinn. Flugfélagið mun fljúga þrisvar sinnum í viku á milli Keflavíkurflugvallar og Rómar, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Róm er annar áfangastaður Wizz Air á Ítalíu og sá 12 í Evrópu. Fyrsta vélin frá Róm lenti á Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum í gærkvöldi og var boðin velkomin með heiðursvatnsboga.

 

„Áhugi Ítala á Íslandi og Íslendinga á Ítalíu fer sífellt vaxandi og er því mikið gleðiefni að geta bætt þessari flugleið. Við höfum alltaf áhuga á að þróa leiðakerfi okkar í tengslum við Ísland og vonumst til að geta bætt við fleiri áfangastöðum,“ segir Andras Rado, samskiptastjóri Wizz Air.

 

„Það er alltaf ánægjulegt þegar að við bætum við okkur flugleiðum og fögnum við því þessum nýja áfangastað. Ofan á það er einnig gaman að sjá flugvöllinn vera að komast í fyrra horf og að samkeppni milli flugfélaga sé sífellt að aukast á sama tíma. Wizz Air hélt áfram flugi um Keflavíkurflugvöll í vetur og hefur haldið því áfram og bætt við nú í sumar,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia.

 

Flugfélagið Wizz Air er eitt 20 flugfélaga sem bjóða upp á áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli til 12 áfangastaða. Wizz Air er með fjölda tenginga við borgir í Evrópu.