
Yfir 500.000 farþegar í júlí
![]() |
Flybe hóf flug á milli Keflavíkurflugvallar og Birmingham í lok júní á þessu ári. |
Í júlí var enn eitt metið slegið í fjölda farþega um Keflavíkurflugvöll, en alls fóru 546.749 farþegar um flugvöllinn og er þetta í fyrsta skipti sem fjöldinn í einum mánuði fer yfir 500 þúsund. Aukningin er 17,8% miðað við sama mánuð í fyrra. Það sem af er ári hafa hátt í 2,2 milljónir farþega farið um flugvöllinn, sem er aukning um 20,2% miðað við sama tímabil árið 2013. Í sumar stunda 20 flugfélög áætlunarflug á milli Keflavíkurflugvallar og 60 áfangastaða.
Farþegatölur í júlí 2014 skiptast þannig:
Brottfararfarþegar | 180.644 |
Komufarþegar | 192.854 |
Skiptifarþegar | 173.251 |
Samtals | 546.749 |
Þessari miklu farþegaaukningu undanfarin ár fylgir aukið álag á innviði flugstöðvarinnar og hefur Isavia ráðist í ýmsar framkvæmdir undanfarið til að takast á við það. Nýverið var lokið við tvöföldun á afkastagetu farangursflokkunarkerfisins auk þess sem 5.000 fermetra viðbygging við suðurhluta flugstöðvarinnar er nú í smíðum. Gert er ráð fyrir að nýja viðbyggingin verði tekin í notkun árið 2016.