Hoppa yfir valmynd
28.6.2019
Yfirlýsing vegna úrskurðar Hæstaréttar í máli ALC

Yfirlýsing vegna úrskurðar Hæstaréttar í máli ALC

Niðurstaða Hæstaréttar í innsteningarmáli ALC liggur nú fyrir og er hún sú að Isavia hafi verið heimilt að kyrrsetja flugvél ALC fyrir skuldum WOW air.

Með niðurstöðu Hæstaréttar í innsetningarmáli vegna flugvélarinnar TF-GPA, í eigu flugvélaleigunnar ALC, telur Isavia að rétturinn sé fyrst og fremst að bregðast við þeirri staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og meðferð málsins fyrir Landsrétti eftir það.Sú staðreynd að ALC kærði ekki úrskurð héraðsdóms til Landsréttar hafi falið í sér yfirlýsingu ALC um að félagið væri sammála kröfum og röksemdum Isavia. Við þær aðstæður bar Landsrétti að verða við óbreyttum kröfum Isavia í málinu og hafna þegar af þeirri ástæðu innsetningu, eins og fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar.

Isavia er þeirrar skoðunar að dómur Hæstaréttar staðfesti efnislega afstöðu Landsréttar til túlkunar á beitingu 136. gr. laga um loftferðir. Málinu hefur nú verið vísað aftur til Landsréttar. Vænta má að Landsréttur taki það til meðferðar og staðfestir kröfur Isavia eins og þær lágu fyrir Landsrétti, auk ákvörðunar um málskostnað.

Flugvélin TF-GPA er áfram kyrrsett þar til niðurstaða fæst í málið. Í millitíðinni vill Isavia ítreka að eigandi vélarinnar getur fengið hana afhenta ef skuld WOW Air er greidd eða ef gild trygging er lög fyrir henni.