Hoppa yfir valmynd
1.12.2023
Drónabann við Grindavík framlengt

Drónabann við Grindavík framlengt

Að beiðni samhæfingarstöðvar Almannavarna, fyrir hönd Lögreglustjórans á Suðurnesjum, hefur áður auglýst flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember nk. Lokunin nær til sama svæðis og verið hefur.

Markast af eftirfarandi hnitum:

635621N0222218W

635440N0221323W

634641N0222232W

634902N0223533W

Gegn skráningu og tilkynningaskyldu fá fjölmiðlar undanþágu til drónaflugs undir 60 m yfir sjávarmáli. Þó verður ekki heimilt að fljúga drónum á svæðinu milli kl. 18:00 og 07:00.