Hoppa yfir valmynd
20.9.2018
LJÓSA- OG VIDEOLISTAVERK Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

LJÓSA- OG VIDEOLISTAVERK Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

Kveikt hefur verið á ljósa- og videóverkinu Innviðir heilans sem myndlistarmaðurinn Haraldur Karlsson hefur útfært sérstaklega fyrir Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Sýning Haraldar er sú þriðja og síðasta í sýningarröð sem Kristín Scheving, myndlistarmaður og sýningarstjóri, hefur stýrt í flugstöðinni í boði Isavia. Aðrir sem sýnt hafa verk á þessu ári eru Sigrún Harðardóttir og Ásdís Sif Gunnarsdóttir. Sýningarnar eru tilraunaverkefni þar sem gestum flugstöðvarinnar er veitt ný upplifun í gegnum tilraunir ólíkra listamanna með ljós og vídeó. Í verkum þeirra birtast mismunandi möguleikar hreyfimynda sem eiga sérstaklega vel við í því millibilsástandi sem einkennir alþjóðlega flugvelli.

Innviðir heilans (2014-2067) er ljósa- og vídeóverk sem Haraldur Karlsson hefur útfært sérstaklega fyrir flugstöðina. Verkið samanstendur af vídeói, sem er sýnt á skjá í miðrými byggingarinnar, í samtali við ljósabúnaðinn í loftinu þar sem Haraldur hefur endurhannað litaflæði og hreyfingu ljósanna.

Í verkinu gerir nútímatæknin okkur kleift að fara í ljóðræna skoðunarferð um þetta stórmerkilega líffæri, heilann. Vídeóverkið á skjánum byggir efnislega á formum heilans. Áhorfandinn er leiddur inn í dýpstu kima heilans þar sem upplýsingar um umheiminn eru teknar inn í gegnum taugakerfið og færðar yfir í þekkingu og vitund. Ljósaverkið, hins vegar, byggir á vinnslu hugans og vangaveltum um eðli hugsunarinnar. Hugsanamynstrum, rafstormum og efnahvörfum er umbreytt yfir í margvísleg form, fleti, ljós og hreyfingar. Með verkinu kannar Haraldur mörk þess kunnuglega en jafnframt framandi heims sem býr innra með okkur öllum. 

Haraldur Karlsson (f. 1967) hefur sérhæft sig í tilraunakenndri vídeólist síðastliðna tvo áratugi. Hann er með próf í fjöltækni frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og BA-próf í nýjum miðlum frá AKI ArtEZ Academie voor Art & Industry í Enschede í Hollandi. Hann lærði hljóðhönnun við Royal Conservatory í Hague. Á árunum 1999–2009 var Haraldur forstöðumaður og kennari í tón- og vídeóveri Listaháskóla Íslands. Haraldur býr og starfar í Osló, en hann hefur haldið fjölda sýninga, gjörninga og fyrirlestra bæði á Íslandi og erlendis.

Nánari upplýsingar um Harald Karlsson má finna hér.

Nánari upplýsingar um sýningaröðina og listafólkið sem tók þátt má finna hér.