
Tillaga að breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024
Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja auglýsir tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við 27. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Breytingartillagan felur í sér eftirfarandi:
- Breytta afmörkun á vatnsverndarsvæði í Reykjanesbæ
- Uppfærð flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar
- Uppfærð vatnsverndarkort fyrir Suðurnesin
Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu og vatnsverndarkorti fyrir Suðurnesin verður aðgengileg frá 29. júlí til og með 16. september 2019, á vefsíðu Isavia, vefsíðu Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum sem og allra sveitarfélaga og aðila sem eiga aðild að nefndinni.
Breytingartillagan verður á ofangreindu tímibili jafnframt til sýnis á skrifstofu sambandsins, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ og á skrifstofum Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sveitarfélagsins Voga og Suðurnesjabæjar. Einnig verður breytingartillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b í Reykjavík, á kynningartímanum.
Skriflegar ábendingar og athugasemdir við tillöguna skal senda til skrifstofu SSS, eða á netfangið [email protected], eigi síðar en 16. september 2019.