Hoppa yfir valmynd
9.12.2019
Útlit fyrir að veður raski flugi á þriðjudag og miðvikudag

Útlit fyrir að veður raski flugi á þriðjudag og miðvikudag

Útlit er fyrir að röskun verði á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli og innanlandsflugvöllum vegna veðurs þriðjudaginn 10. desember og fram til miðvikudagsins 11. Desember. Flugferðum Icelandair til og frá Keflavíkurflugvelli eftir hádegi á þriðjudaginn hefur verið aflýst.

Farþegar eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum um flugtíma á vef Isavia eða hjá viðkomandi flugfélögum. Hægt er að skrá sig fyrir flugtilkynningum um komur og brottfarir á vefnum og fá þær með Messenger eða Twitter.

Rétt er að benda á Reykjanesbraut verður mögulega lokað frá hádegi á þriðjudag til hádegis á miðvikudag.

Á Keflavíkurflugvelli er unnið eftir reglum um aðgerðir og viðbrögð þegar óveðursástand skapast á Keflavíkurflugvelli. Þessar reglur eru grundvallaðar á því að tryggja öryggi farþega og er það ávallt sett í fyrsta sæti í þeim aðstæðum. Þegar slæmar veðuraðstæður verða á Keflavíkurflugvelli er í ákveðnum tilfellum nauðsynlegt að takmarka notkun á landgöngubrúm þannig að hægt sé að forðast slys á fólki og því til viðbótar koma í veg fyrir skemmdir á tækjum og búnaði.

• Vindhviður yfir 50 hnúta (tæpir 26 m/s) – allar landgöngubrýr teknar úr notkun af öryggisástæðu þ.e. til að tryggja öryggi farþega og koma í veg fyrir slys á fólki.

• Notkun stigabíla er á hendi flugþjónustuaðila á flugvellinum og þá í samráði við viðkomandi flugfélög.