
Viðburður: Ábyrg uppbygging í takt við fjöldann
Við efnum til morgunfundar þann 1. desember í Norðurljósum í Hörpu. Á fundinum verður farið yfir farþegaspá Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2023 sem og uppbyggingu og framkvæmdir sem framundan eru á flugvellinum. Við förum yfir stefnu Isavia og kynnum áherslur okkar í sjálfbærni.
Salurinn verður opnaður kl. 8.30 og boðið verður upp á kaffi og létta morgunhressingu. Fundurinn stendur frá kl. 9.00-10.00 og verður streymt á vef Isavia. Skráning á fundinn og nánari upplýsingar má finna hér.
Dagskrá:
8.30 Húsið opnar og boðið er upp á kaffi og léttar veitingar.
9.00 Ávarp - Lilja Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra.
9.10 Saman náum við árangri - stefnan og flugvallarsamfélagið. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri.
9.30 Ábyrg uppbygging og farþegaspá Keflavíkurflugvallar. Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar.