3.6.2024
Vilja hraða rafvæðingu í flugsamgöngum
Framtíð orkuskipta og rafmagnsflugs var umræðuefnið þegar fulltrúar íslenskra stjórnvalda og hagsmunaaðila sátu vinnufund um rafmagnsflugvélaverkefnið NEA (Nordic Network for Electric Aviation) í dag. Á vettvangi NEA hafa Isavia, með dótturfélag sitt Isavia Innanlandsflugvelli í fararbroddi, Icelandair og rekstraraðilar annarra flugvalla og flugfélaga á Norðurlöndunum ásamt flugvélaframleiðendum tekið höndum saman um að hraða eftir fremsta megni orkuskiptum í flugi. Áherslan í samstarfinu er lögð á rafmagnsflug.