31.8.2023
Nýr og rúmbetri töskusalur á Keflavíkurflugvelli
Nýr og rúmbetri töskusalur beið þeirra farþega sem lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Töskusalurinn er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar og miðar að því að bæta aðstöðu fyrir farþega og upplifun þeirra. „Hér er hærra til lofts, víðara til veggja og færiböndin eru stærri og afkastameiri. Þannig getum við tekið betur á móti gestum Keflavíkurflugvallar, með betri aðstöðu til að bíða eftir farangrinum en vonandi einnig styttri bið,“ segir Maren Lind Másdóttir, forstöðumaður mannvirkja og innviða hjá Isavia.