Hoppa yfir valmynd

Pop-up

„Pop-up“ – á einum fjölfarnasta stað Íslands

Við leitum eftir rekstraraðilum sem sjá tækifæri í  tímabundnum rekstri (Pop-up) á Keflavíkurflugvelli. Tækifærið einskorðast ekki við sölu á áþreifanlegri vöru því einnig er horft til fræðslu, upplifunar eða jafnvel leiktækja á svæðinu.

Opið er fyrir umsóknir fyrir tækifæri á tímabilinu frá apríl 2023 til ársloka 2028 og miðað er við að hvert tækifæri vari í 1 – 12 mánuði. Hámarkslengd hvers tækifæris er þó 23 mánuðir. Þar sem samningar eru til styttri tíma eru þeir án útboðs og heildarferlið einfalt.

Allar hugmyndir eru skoðaðar en sérstaklega er leitað af hugmyndum sem eru einfaldar í uppsetningu. Hægt er að fá aðgengi að rafmagni á öllum stöðum, aðgengi að heitu og köldu vatni ásamt niðurfalli er mjög takmarkað og einskorðast við ákveðnar staðsetningar, hugmyndir sem krefjast útsogs eru ekki skoðaðar.

Umsækjendur verða boðnir í viðtöl eftir þörfum til að fylgja eftir umsóknum. Við val á viðsemjendum verður horft til þess að aðilar í tímabundnum rekstri auki við fjölbreytni í þjónustu á svæðinu. Sérstaklega verður horft til aðila sem geta boðið uppá tengingu við íslenska menningu ásamt hverskonar upplifun fyrir farþega. Litið er þó til annara þátta við val á umsækjendum t.d. tekjumöguleika.

Forsendur og kröfur

Samstarfið byggir á auglýsingu viðskiptatækifærisins, viðræðum aðila og undirrituðum samningi aðila.

  • Samningstími: 1-12 mánuðir sem endar 2028.
  • Leyfi: Rekstraraðili skal vera með öll tilskilin leyfi sem þarf til reksturs og hafa staðið í skilum á opinberum gjöldum, lífeyrissjóðsiðgjöldum og öðrum lögákveðnum gjöldum.
  • Staðsetning á flugstöð: Flest svæði verða í brottfarasal verslana og veitinga þar sem allir brottfarafarþegar og hluti tengifarþega fara í gegn. Hægt er að skoða útfærslu á öðrum staðsetningum eins og innritunarsvæði, komusvæði eða landamærasal.
  • Aðstöðusköpun og búnaður: Umræða fer fram milli samningsaðila um útfærslur á einingum. Möguleiki er á aðgengi í vatn og rafmagn ef þess er þörf, þó mismunandi eftir staðsetningu.

Í umsókn skal taka fram eftirfarandi:

  • Lýsing á „Pop-up“ hugmynd.
  • Fjöldi fermetra sem óskað er eftir.
  • Óskastaðsetning í flugstöð.
  • Lýsing á aðstöðu sem hugmyndin þarfnast, gott að fá myndir ef til staðar.
  • Er þörf á vatni, niðurfalli eða rafmagni.
  • Aðrar upplýsingar sem umsóknaraðila þykir vert að koma á framfæri.
  • Óska tímasetning, upphaf og lengd.


Umsóknir og fyrirspurnir:

Karitas Kjartansdóttir
Karitas.Kjartansdottir@isavia.is
Sérfræðingur í viðskiptaþróun / Specialist Business development

 Leitast verður eftir að svara fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.