Hoppa yfir valmynd

Opnunartími

  • Öll morgunflug og eftirmiðdagsflug

Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar var stofnuð í Reykjavík fyrir jólin 1996 af Kormáki Geirharðssyni trymbli og Skildi Sigurjónssyni matreiðslumanni. Árið 2006 opnaði Herrafataverzlunin í Kjörgarði, einni elstu verslunarmiðstöð Reykjavíkur, eftir að hafa legið í dvala um nokkurra ára skeið. Vöruúrvalið tekur sérstaklega mið af breskri klæðahefð, með áherslu á þykk og góð ullarefni og fatnað sem hentar vel til útivistar og frístunda á norðlægum slóðum. Aðal verslunarinnar hefur ætíð verið alþýðlegt skap eigenda hennar og starfsmanna og sú trú að enginn sé svo illa uppdreginn að ekki megi koma honum til bjargar.